Á upphafssíðu má finna valdar göngu-, hjóla- og hlaupaleiðir ásamt útivistarsvæðum og sundlaugum sem einnig er hægt að skoða á yfirlitskorti með því að velja táknið
og velja síðan úr undirvalmynd.
Hægt er að skoða yfirlit yfir skráðar göngu-, hjóla- og hlaupaleiðir ásamt útivistarsvæðum og sundlaugum með því að velja viðeigandi flokk í valmyndinni. Á yfirlitssíðum leiða, svæði og sundlauga er hægt að sía eftir ýmsum breytum, s.s.sveitarfélagi, tímalengd, erfiðleikastigi leiðar, aðstöðu/þjónustu, aðgengi ofl.
Sía
Upplýsingar fylgja öllum leiðum, útivistarsvæðum og sundlaugum ásamt korti sem sýnir viðkomandi leið, svæði eða sundlaug. Notandi getur jafnframt séð eigin staðsetningu á korti og fylgt leið í rauntíma.
Á vefnum er að auki öflug leitarvél en hægt er að leita eftir sveitarfélagi, staðarheiti, þjónustu eða öðru sem tengist leiðum, svæðum og sundlaugum.
Útskýring á erfiðleikastigi göngu- og hjólaleiða:
- Aðgengi fyrir alla: Leið sem allir ættu að geta farið um.
- Þrep 1: Einföld leið sem breiður hópur notenda getur nýtt sér.
- Þrep 2: Nokkuð einföld leið sem krefst grundvallarfærni fyrir einstaklinga í ágætu formi.
- Þrep 3: Erfið og krefjandi leið fyrir vant útivistarfólk í góðu líkamlegu formi.
- Þrep 4: Leið fyrir mjög vant útivistarfólk í mjög góðri þjálfun.
Útskýring á erfiðleikastigi hlaupaleiða:
Mat á erfiðleikastigi hlaupaleiða er út frá álagsvegalengd.
Álagsvegalengd = vegalengd (km) + hækkun (m) ÷ 100. Dæmi: 10 km leið með 400 m hækkun = 10 + 4 = 14 km álag.
- Aðgengi fyrir alla: Slétt og hjólastólafært, engin hindrun - Hækkunarþak undir 0m og viðmið um tíma mjög stutt.
- Þrep 1: Létt leið undir 10km, hækkunarþak undir 100m og viðmið um tíma er 30-90 mín.
- Þrep 2: Miðlungsleið sem er 10-21km, hækkunarþak undir 400m og viðmið um tíma er innan 4 klst.
- Þrep 3: Krefjandi leið sem er 21-42km, hækkunarþak er ≥ 400m og viðmið um tíma er 4-9 klst.
- Þrep 4: Lengri leið sem er lengri en 42 km, hækkunarþak er mikið og viðmið um tíma er ≥ 10 klst.