Búrfell um Búrfellsgjá
Þessi leið er stutt og aðgengileg útgáfa af Búrfellsgjárhlaupinu, sem liggur beint um hrauntröðina upp á gíginn Búrfell og sömu leið til baka. Leiðin hefst við bílastæðið við Búrfellsgjá, þar sem gott fræðsluskilti lýsir leiðinni og helstu kennileitum. Búrfellsgjá er rúmlega 3,5 km löng hrauntröð frá gígnum Búrfelli, sem er stakur gjall- og klepragígur er gaus fyrir um 8000 árum. Búrfell, Búrfellsgjá og Selgjá voru friðlýst sem náttúruvætti árið 2020. Gengið er niður timburtröppur við Hjallamisgengið og inn í gjána, sem er þröng og með bröttum veggjum næst gígnum en breikkar niður á jafnsléttu. Á leiðinni sjást margskonar hraunmyndanir, litlir hellisskútar, sprungur og misgengi. Þar er einnig Gjáarétt, hlaðin rétt frá 1839 sem var friðlýst sem fornleifar 1964, og Vatnsgjá þar sem smalar sóttu vatn. Undirlagið er malarstígur, greiðfær en grýttur á köflum, og lausamöl er í hlíðum Búrfells. Farið er niður að aftan og gíg Búrfells fylgt stutta leið til baka áður en komið er aftur inn á malarstíginn. Leiðin er um 5,6 km með um 100 metra hækkun.
Bílastæði við Búrfellsgjá
Nánari upplýsingar
Tímalengd
Vegalengd
Erfiðleiki
Samanlögð hæðarhækkun
Mesta hæð
Tímabil
Sýnileiki leiðar
Lýsing
Yfirborð
Breidd á stíg
Hindranir
Þjónusta á leiðinni
Upphafspunktur (lengd/breidd)
Hæð upphafspunkts
Samanlögð hæðarlækkun
Hnit hæsta punkts
Lægsta hæð
Hnit lægstu hæðar
Vegalengd
Nánari upplýsingar um þjónustu
Bílastæði og fræðsluskilti við Búrfellsgjá.
Upplýsingar um hindranir
Timber steps at the Hjalli fault. Loose scree on the slopes of Búrfell. Popular with mountain bikers.