Esjuhringur með Bibbu
Esjan er bæjarfjall Reykjavíkur og einn vinsælasti útivistarstaður borgarbúa, en um leið krefjandi fjall þar sem fara þarf varlega. Þessi leið er mældur 10 km hringur með um 670 metra hækkun og hentar vönum hlaupurum í góðu formi. Ólíkt hefðbundnu Esjugöngunni fer þessi leið ekki upp að Steini, heldur nýtir austurhluta göngusvæðisins. Hlaupið hefst við Esjustofu og er haldið austur eftir vegum að austanverðu svæðinu. Þaðan er þjónustuvegi fylgt langleiðina upp í átt að Gunnlaugsskarði, sem er skarðið milli Kistufells og Þverfells. Efst er beygt til vesturs í átt að Steini, en áður en þangað er komið er haldið niður hefðbundnu gönguleiðina og niður yfir göngubrúna og endað er aftur við Esjustofu. Þessi austurleið er upprunalega „Bibban“. Bibban er nefnd eftir Bryndísi Baldursdóttur sem ásamt Sigrúnu Árna datt í hug að halda hlaup í Esjunni sem væri nákvæmlega 10 km hver hringur með allt að 100 km fjallahlaupi. Leiðin var mikið notuð af hlaupahópum áður en stígum um Esjuna var fjölgað. Bibban á því heiðurinn af því að kynna ótal hlaupara fyrir því að hlaupa út úr hefðbundna Esjuhringnum upp af Steini. Í dag eru enn fleiri útgáfur til en gjarnan er talað um að „taka Bibbu“ eða „bæta við Bibbu“ þegar hlaupið er út frá Steini austur í átt að Gunnlaugsskarði og niður til baka. Undirlagið er blandað; vegir, þjónustuvegur, stígar og skriður. Fara ber með gát, einkum að vetrarlagi, vegna snjóflóðahættu, grjóthruns og hálku. Bílastæði, þjónusta og fræðsluskilti eru við Esjustofu.
Esjustofa við Mógilsá
Nánari upplýsingar
Tímalengd
Vegalengd
Erfiðleiki
Samanlögð hæðarhækkun
Mesta hæð
Tímabil
Sýnileiki leiðar
Lýsing
Yfirborð
Breidd á stíg
Hindranir
Þjónusta á leiðinni
Upphafspunktur (lengd/breidd)
Hæð upphafspunkts
Samanlögð hæðarlækkun
Hnit hæsta punkts
Lægsta hæð
Hnit lægstu hæðar
Vegalengd
Tímabundnar upplýsingar
Að vetrarlagi er nauðsynlegt að hafa hálkubrodda og fara með gát vegna snjóflóðahættu. Efsti hluti óráðlegur að vetri nema fyrir vana með öryggisbúnað.
Nánari upplýsingar um þjónustu
Bílastæði, salerni, Esjustofa og fræðsluskilti við Mógilsá.
Upplýsingar um hindranir
Steep route with scree. Avalanche risk, rockfall and ice, especially in winter. The eastern leg (Bibba) is less trodden.