![](/sites/default/files/styles/hero_768/public/route-images/fossvogsdalur-1776.jpg?itok=2CDtiADj)
Fossvogsdalur
Upphafsstaður er miðsvæðis í dalnum, við íþróttasvæðið Fagralund í Kópavogi. Þaðan er hægt að velja þrjá göngumöguleika: ganga um vesturhlutann (um 2,5 km), ganga um austurhlutann (um 4 km) eða ganga dalinn allan. Á leiðinni eru áhugaverðir staðir eins og Hermannsskógur, Norræni vinalundurinn, Álfaskógur og Trjásafnið í Meltungu, sem er austast í dalnum. Það er hægt að ganga um þetta svæði allt árið og eingöngu þarf að huga að því að klæða sig í takt við veður. Hugsanlega þarf hálkubrodda á vissum tímum á veturna. Gróðursældin er mikil og fróðlegt að sjá grænu sprotana snemma á vorin jafnt sem litskrúð haustsins. Fuglalífið stendur í blóma á sumrin og margar tegundir verpa á svæðinu. Reyndar er fjölbreytt fuglalíf í dalnum árið um kring og gaman að gefa gaum þeim tegundum staðfugla sem kjósa að þreyja veturinn í Fossvogsdalnum.
Fagrilundur
Nánari upplýsingar
Tímalengd
Vegalengd
Erfiðleiki
Samanlögð hæðarhækkun
Mesta hæð
Tímabil
Aðgengi að leið
Sýnileiki leiðar
Lýsing
Yfirborð
Breidd á stíg
Hættur
Hindranir
Upphafspunktur (lengd/breidd)
Hæð upphafspunkts
Samanlögð hæðarlækkun
Hnit hæsta punkts
Lægsta hæð
Hnit lægstu hæðar
Áhugaverðir áningarstaðir
Trjásafnið í Meltungu er austast í dalnum og hafist var handa við að gróðursetja í trjásafnið árið 1996 og er enn verið að. Þar er nú að finna um 1.200 tegundir, afbrigði og yrki trjáa og runna á alls um 8 hektara svæði sem gerir þetta nú þegar eitt fjölbreyttasta trjásafn landsins og er stór hluti tegundanna merktur með íslensku nafni, latnesku fræðiheiti og hvaða ætt tegundin tilheyrir. Við njótum núvitundarinnar og göngum um ýmsa hluta trjásafnsins; aspaskóginn, Yndisgarðinn, Aldingarðinn, Sígræna garðinn og Rósagarðinn. Við Kjarrhólma er stórt skilti um trjásafnið. Rósagarðurinn er annar áningastaður á leiðinni sem hefur að geyma fjölbreytt safn rósa og þar getur verið rómantískt um að litast þegar allskonar litar rósirnar eru í blóma. Sá tími er frá byrjun júlí og langt fram eftir hausti. Skammt frá Rósagarðinum er jafnframt að finna fróðleiksskilti um nýbýlið Meltungu.
Nánari upplýsingar um þjónustu
Salerni í Íþróttahúsi Fagralundi
Vegalengd
![](/sites/default/files/route-images/fossvogsdalur-1776.jpg)
Fagrilundur