Grímannsfell frá Gljúfrasteini
Þessi leið er krefjandi fjallahlaupaleið á Grímannsfell, sem stundum er einnig ritað Grímarsfell og er hæsta fjall í landi Mosfellsbæjar, 484 metrar á hæð. Leiðin hefst við Gljúfrastein í Mosfellsdal, hús Nóbelsskáldsins Halldórs Laxness sem nú er safn, og liggur um sögufrægar slóðir. Sagt er að skáldið hafi oft gengið meðfram Köldukvísl sér til heilsubótar, fram að Helgufossi og til baka. Frá safninu er fylgt stikaðri leið, oft kölluð Skáldaleiðin, meðfram ánni Köldukvísl. Fljótlega er komið að Helgufossi, fallegum fossi þar sem er snotur áningarstaður og friðlýstar rústir af seli sem kennt er við Helgu. Ofan við fossinn er farið yfir ána á brú og haldið á brattann upp á fjallið. Slóðinn er stikaður alla leið með appelsínugulum stikum. Hæsti hluti fjallsins nefnist Stórhóll, en vesturtindurinn heitir Flatafell. Af toppnum er glæsilegt útsýni yfir Mosfellsheiði, Esjuhlíðar, Móskarðshnúka og allt höfuðborgarsvæðið. Á niðurleið er hægt að fara hring efst yfir Katlagil, sem lengir leiðina lítillega en opnar nýja sýn á Mosfellsdalinn. Leiðin er um 10,5 km með um 475 metra hækkun og hentar vönum hlaupurum í góðu formi. Undirlagið er blandað; tún, móar, þýft land og stikaðir stígar. Upp við fjallið getur verið bleyta og mýrlendi nema í þurrkatíð. Bílastæði og safn eru við Gljúfrastein.
Bílastæði við Gljúfrastein, Mosfellsdal
Nánari upplýsingar
Tímalengd
Vegalengd
Erfiðleiki
Samanlögð hæðarhækkun
Mesta hæð
Tímabil
Sýnileiki leiðar
Lýsing
Yfirborð
Breidd á stíg
Hindranir
Þjónusta á leiðinni
Upphafspunktur (lengd/breidd)
Hæð upphafspunkts
Samanlögð hæðarlækkun
Hnit hæsta punkts
Lægsta hæð
Hnit lægstu hæðar
Vegalengd
Áhugaverðir áningarstaðir
Gljúfrasteinn: hús og safn Halldórs Laxness. Helgufoss: 12 m foss með friðlýstum selrústum kenndum við Helgu. Stórhóll (482 m) og Flatafell, tindar Grímannsfells, með útsýni yfir Mosfellsheiði, Esju og Móskarðshnúka. Skáldaleiðin meðfram Köldukvísl.
Nánari upplýsingar um þjónustu
Bílastæði og safnið Gljúfrasteinn (með salerni og kaffi á opnunartíma) við upphaf leiðar.
Upplýsingar um hindranir
Bridge over Kaldakvísl and several streams to cross. Near Grímannsfell the ground can be wet and boggy except in dry spells. Tussocky ground in places and a steep climb up the mountain. The summit can be windy.