Helgafellshringur frá Varmárlaug
Þessi leið er skemmtileg fjallahlaupaleið á Helgafell, eitt af bæjarfjöllum Mosfellsbæjar, sem rís 216 metra yfir sjávarmáli. Leiðin hefst við íþróttamiðstöðina við Varmá, þaðan sem meðal annars Tindahlaup Mosfellsbæjar er ræst, og fylgir göngustígum upp að fellinu. Gönguleiðin upp fjallið er merkt með stikum og liggur á ská upp hlíðina. Áður en lagt er á brattann má sjá litla laut í fjallinu, sem eru leifar af gullnámu frá því um aldamótin 1900, þar sem grafið var eftir gulli án árangurs. Þegar upp er komið er stutt ganga að hæsta punkti fellsins. Af fellinu er víðsýnt yfir Mosfellsbæ, Esju og sundin, og með því að ganga út á suðurbrúnir sést vel yfir Hafravatn og til Bláfjalla. Leiðin er um 8 km með um 218 metra hækkun og myndar hring. Undirlagið er blandað; malbikaður göngustígur í byrjun og síðan stikaðir mold- og malarstígar upp fjallið. Rétt er að hafa í huga að niðurleiðin er brött á köflum og laus í sér, svo fara ber með gát. Mosfellsbær hefur unnið gott starf við að merkja og stika gönguleiðir bæjarins. Bílastæði og sundlaug eru við Varmá.
Íþróttamiðstöðin við Varmá (Varmárlaug)
Nánari upplýsingar
Tímalengd
Vegalengd
Erfiðleiki
Samanlögð hæðarhækkun
Mesta hæð
Tímabil
Aðgengi að leið
Sýnileiki leiðar
Lýsing
Yfirborð
Breidd á stíg
Hindranir
Þjónusta á leiðinni
Upphafspunktur (lengd/breidd)
Hæð upphafspunkts
Samanlögð hæðarlækkun
Hnit hæsta punkts
Lægsta hæð
Hnit lægstu hæðar
Vegalengd
Nánari upplýsingar um þjónustu
Sundlaug, salerni og bílastæði við íþróttamiðstöðina að Varmá (Varmárlaug).
Upplýsingar um hindranir
The descent is steep and loose in places, with a considerable gradient on one section; take care. The summit can be windy.