Hobbitastígur og Vífilshlíð – stutt útgáfa
Þessi leið er stutt og létt útgáfa af Hobbitastígshringnum í Vífilsstaðarhlíð og hentar vel byrjendum í utanvegahlaupum eða þeim sem vilja styttri æfingu. Leiðin hefst við bílastæði við enda Vífilsstaðahlíðar en svæðið var friðlýst árið 2007 og er rómað fyrir fjölbreytt fugla- og dýralíf. Hlaupið er upp neðanverðan Hobbitastíginn, sem hlauparar á svæðinu þekkja vel, og um neðri hluta Vífilsstaðahlíðar, en þessi útgáfa sleppir efri hluta stígsins og bröttustu köflunum sem lengri leiðin fer um. Undirlagið er að mestu þjappaðir moldarstígar og góðir malarstígar sem henta vel til hlaupa. Leiðin er um 5,5 km hringur með lítilli hækkun, aðeins um 50 metrum, og er því þægileg og aðgengileg. Vífilsstaðahlíð er skjólsæl og gróin og því kjörin í hvassviðri. Garðabær hefur byggt upp góða aðstöðu á svæðinu með bílastæðum, bekkjum, fræðsluskiltum og kortum við aðkomu. Á sumardögum er nokkur umferð á stígunum, bæði gangandi og hjólandi, og rétt að sýna aðgát. Þar sem svæðið er að hluta friðland ber að ganga vel um náttúruna; hundar eru bannaðir í friðlandinu um varptímann. Þeir sem vilja lengri og meira krefjandi leið geta valið 8 km útgáfuna af Hobbitastíg og Vífilsstaðahlíð.
Bílastæði við hringhlið við enda Vífilsstaðahlíðar
Nánari upplýsingar
Tímalengd
Vegalengd
Erfiðleiki
Samanlögð hæðarhækkun
Mesta hæð
Tímabil
Sýnileiki leiðar
Lýsing
Yfirborð
Breidd á stíg
Hættur
Hindranir
Þjónusta á leiðinni
Upphafspunktur (lengd/breidd)
Hæð upphafspunkts
Samanlögð hæðarlækkun
Hnit hæsta punkts
Lægsta hæð
Hnit lægstu hæðar
Vegalengd
Tímabundnar upplýsingar
Hundar bannaðir í friðlandinu við Vífilsstaðavatn um varptímann.
Nánari upplýsingar um þjónustu
Bílastæði, bekkir og fræðsluskilti
Upplýsingar um hindranir
Busy paths in summer; mutual care between runners and cyclists.
Bílastæði við hringhlið við enda Vífilsstaðahlíðar