Hvaleyrarvatn og Stórhöfði
Þessi leið er skjólsæl og fjölbreytt utanvegahlaupaleið við Hvaleyrarvatn, fallegt stöðuvatn innan bæjarmarka Hafnarfjarðar sem umlukið er grónum skógi. Leiðin hefst við bílastæði norðan vatnsins og tengir saman hringinn um vatnið og hæðina Stórhöfða. Við vatnið er skógræktarsvæðið Höfðaskógur, í umsjón Skógræktarfélags Hafnarfjarðar sem stofnað var árið 1947, en á rúmum sextíu árum hefur þar verið byggt upp gróskumikið útivistarsvæði. Undirlagið er að mestu þéttir malarstígar við vatnið og mýkri skógarstígar í skóginum. Stórhöfði er hæsta hæðin á svæðinu og af honum er gott útsýni, meðal annars til Helgafells. Hvaleyrarvatnssvæðið er ríkt af þjóðsögum; sagt er að nykur hafi verið í vatninu og orðið stúlku í seli að bana, en sunnan vatnsins má sjá tóftir Hvaleyrarsels. Á svæðinu er einnig Skátalundur, skáli eldri skáta. Leiðin er um 8 km með um 140 metra hækkun og hentar vel í æfingahlaup; Hvítasunnuhlaup Hauka fer meðal annars um þessar slóðir. Á sumardögum er nokkur umferð á stígunum, bæði gangandi og hjólandi. Við vatnið eru bílastæði, salerni, bekkir og grillsvæði, og svæðið er kjörið til útivistar allan ársins hring.
Bílastæði norðan Hvaleyrarvatns
Nánari upplýsingar
Tímalengd
Vegalengd
Erfiðleiki
Samanlögð hæðarhækkun
Mesta hæð
Tímabil
Sýnileiki leiðar
Lýsing
Yfirborð
Breidd á stíg
Hættur
Hindranir
Þjónusta á leiðinni
Upphafspunktur (lengd/breidd)
Hæð upphafspunkts
Samanlögð hæðarlækkun
Hnit hæsta punkts
Lægsta hæð
Hnit lægstu hæðar
Vegalengd
Nánari upplýsingar um þjónustu
Bílastæði, salerni, bekkir og grillsvæði við Hvaleyrarvatn.
Upplýsingar um hindranir
Busy paths in summer; mutual care between runners and cyclists. The path up Stórhöfði can be indistinct.