Kringum Helgafell um Valaból
Þessi leið liggur hringinn í kringum Helgafell í Hafnarfirði, tignarlegan móbergsstapa sem rís 338 metra yfir sjávarmáli, en fer ekki upp á fjallið sjálft. Leiðin hefst við bílastæðið við enda Kaldárselsvegar, skammt frá vatnsbólum Hafnfirðinga í Kaldárbotnum, og fylgir slóð sem liggur umhverfis fjallið. Undirlagið er fjölbreytt hraunlandslag; melar, sandar, klappir og helluhraun. Á leiðinni er farið með fram Valahnúkum, móbergshrygg norðan Helgafells, og komið að Valabóli, fallegum skógræktarlundi sem Bandalag íslenskra farfugla hóf að rækta upp rétt eftir 1940. Þar er Músarhellir, lítill hellir sem lengi var notaður sem afdrep smalamanna og síðar sæluhús Farfugla. Austan megin fjallsins má sjá klettadranginn Riddarann. Leiðin er um 9,5 km með lítilli hækkun, um 100 metrum, og er hluti af því sem stundum er kallað „Helgafellsáttan“. Hún er vinsæl meðal hlaupara og fjallahjólara. Við Kaldársel eru friðlýstar fornminjar, meðal annars bæjarrústir og fjárhústóft. Bílastæði er við upphafsstað. Svæðið er vatnsverndarsvæði og ber að ganga vel um.
Bílastæði við enda Kaldárselsvegar
Nánari upplýsingar
Tímalengd
Vegalengd
Erfiðleiki
Samanlögð hæðarhækkun
Mesta hæð
Tímabil
Sýnileiki leiðar
Lýsing
Yfirborð
Breidd á stíg
Hættur
Hindranir
Þjónusta á leiðinni
Upphafspunktur (lengd/breidd)
Hæð upphafspunkts
Samanlögð hæðarlækkun
Hnit hæsta punkts
Lægsta hæð
Hnit lægstu hæðar
Vegalengd
Nánari upplýsingar um þjónustu
Bílastæði við enda Kaldárselsvegar.
Upplýsingar um hindranir
Popular with mountain bikers; mutual care. Lava surface can be uneven in places.