![](/sites/default/files/styles/hero_768/public/route-images/mosfell-2253.jpg?itok=_Jkyoq1e)
Mosfell
Mosfell er lágreist fjall (280 m y.s.) í Mosfellsdal. Leiðin upp á Mosfell er tilvalin fyrir alla fjölskylduna þar sem genginn er hringur sem byrjar og endar við bílastæði Mosfellskirkju. Stígurinn upp á Mosfell er greinilegur og er leiðin einnig vel stikuð. Í upphafi er gengið áleiðis upp fjallið að kolli sem nefnist Diskur. Þaðan er svo haldið áfram upp aflíðandi brekku upp austurenda fjallsins. Þaðan er síðan gengið eftir nær sléttu landi vestur eftir fjallinu á hæsta punkt þess, en þaðan er fallegt útsýni yfir til Esju og yfir Mosfellsdalinn. Stikunum er svo fylgt til suðurs niður eftir fjallinu þar til komið er aftur að upphafi leiðarinn. Frá því að Stardalsmegineldstöðin kulnaði fyrir um tveimur milljónum ára hafa roföflin grafið dali í svæðið sunnan Esju og myndað það landslag sem við sjáum nú. Berggrunnurinn er að mestu hraun sem runnu á hlýskeiði og í Mosfelli má sjá hraunlög sem hafa hlaðist upp á löngum tíma. Mosfellsheiði er dyngja og þaðan runnu hraun niður á láglendið í Mosfellssveit. Víða er jarðhiti í tengslum við virkar sprungur og misgengi sem teygja sig út frá gosbeltinu. Í Mosfellsdal eru þykk setlög sem benda til þess að þar hafi verið stöðuvatn. Egils saga greinir frá því að Egill Skallagrímsson hafi dvalið á Mosfelli á efri árum hjá Þórdísi bróðurdóttur sinni. Samkvæmt sögunni á hann að hafa falið silfursjóð sinn hér í nágrenninu.
Við Mosfellskirkju
Nánari upplýsingar
Tímalengd
Vegalengd
Erfiðleiki
Samanlögð hæðarhækkun
Mesta hæð
Tímabil
Aðgengi að leið
Sýnileiki leiðar
Lýsing
Yfirborð
Breidd á stíg
Hættur
Hindranir
Þjónusta á leiðinni
Upphafspunktur (lengd/breidd)
Hæð upphafspunkts
Samanlögð hæðarlækkun
Hnit hæsta punkts
Lægsta hæð
Hnit lægstu hæðar
Vegalengd
![](/sites/default/files/route-images/mosfell-2253.jpg)
Við Mosfellskirkju