Reynisvatnshringur
Reynisvatnshringur er fjölbreytt utanvegahlaupaleið við Reynisvatn, lítið og friðsælt stöðuvatn austan við Grafarholt í Reykjavík. Vatnið er umlukið grónum skógi sem veitir skjól og laðar að fjölbreytt fuglalíf, einkum mófugla á vorin og sumrin. Greiðfær og vel merktur stígur liggur hringinn í kringum vatnið, um 1,3 km, en þessi leið er lengri hringur sem nýtir tengingu Reynisvatns við stígakerfi Austurheiða og fer út í holtin í kring. Leiðin er um 9,5 km með hóflegri hækkun, alls um 145 metrum, og hentar vel í æfingahlaup. Umhverfið er fjölbreytt: jökulsorfin grágrýtisholt, fornar jarðmyndanir, sprungur og misgengi setja svip sinn á landslagið, og gróðurfar er fjölbreytt með mosa, lyngmóum og graslendi. Bekkir eru á völdum stöðum við vatnið þar sem hægt er að setjast niður og njóta umhverfisins. Reynisvatn tengist stígakerfi sem spannar svæðið frá Rauðavatni yfir að Langavatni, svo auðvelt er að lengja eða breyta leiðinni. Bílastæði er við vatnið. Vatnshringurinn sjálfur er vel merktur en sá hluti leiðarinnar sem fer út í heiðina er það síður, svo gott er að þekkja leiðina eða hafa kort í úrinu.
Bílastæði við Reynisvatn
Nánari upplýsingar
Upphafspunktur (lengd/breidd)
Hæð upphafspunkts
Samanlögð hæðarlækkun
Hnit hæsta punkts
Lægsta hæð
Hnit lægstu hæðar
Vegalengd
Nánari upplýsingar um þjónustu
Bekkir við Reynisvatn
Upplýsingar um hindranir
Well-marked lakeside path but the moorland section less so; a map is advisable. Mutual care between runners and cyclists.