Mynd
Engin atkvæði ennþá
Sveitarfélag

Stjörnuhlaupshringurinn frá Miðgarði

Þessi leið er keppnisleið Stjörnuhlaupsins, árlegs utanvegahlaups sem Hlaupahópur Stjörnunnar hefur haldið frá árinu 2011. Leiðin liggur Garðabæjar megin í Heiðmörk, í landi Vífilsstaða, og er vinsæl æfingaleið hlaupara á svæðinu. Hringurinn hefst við íþróttahúsið Miðgarð, sem stendur við golfvöllinn í Vetrarmýri. Frá Miðgarði er farið eftir slóð austur undir Hnoðraholti og meðfram golfvellinum inn í útivistarskóga Skógræktar Garðabæjar í Smalaholti og áfram um Sandahlíð. Leiðin er upp í móti fyrstu 5 km með hæsta punkt í 150 metra hæð í hlíðinni ofan við Skátaheimilið. Þaðan er leiðin nánast öll niður í móti, með skemmtilegri og langri lækkun niður að Vífilsstaðavatni og til baka í Miðgarð. Samanlögð hækkun er um 200 metrar. Undirlagið er ekki mjög torfært, heldur að mestu þjappaðir moldarstígar eins og víðast hvar í Heiðmörk, mjúkur hestastígur að hluta og nýir malarstígar. Á einum stað þarf að fara með gát yfir akveg. Að öðru leiti er leiðin er örugg og aðgengileg fyrir öll getustig og hentar vel í æfingahlaup. Á sumardögum er nokkur umferð á stígunum, bæði gangandi og hjólandi. Góð aðstaða er í Miðgarði fyrir og eftir hlaup með salernum og skjóli. 

Opna kort
Upphafsstaður leiðar

Bílastæði við Miðgarð (íþróttahús)

Nánari upplýsingar

Tímalengd

Vegalengd

10.87km

Erfiðleiki

Samanlögð hæðarhækkun

219,2m

Mesta hæð

156,9m

Tímabil

MEIRAMINNA

Sýnileiki leiðar

Lýsing

Breidd á stíg

Þjónusta á leiðinni

Upphafspunktur (lengd/breidd)

64 .08,
-21. 88

Hæð upphafspunkts

39,6m

Samanlögð hæðarlækkun

219,1m

Hnit hæsta punkts

64 .06,
-21. 83

Lægsta hæð

38,8m

Hnit lægstu hæðar

64 .08,
-21. 88

Vegalengd

10.867,2m

Áhugaverðir áningarstaðir

Útivistarskógar Skógræktar Garðabæjar í Smalaholti og Sandahlíð. Vífilsstaðavatn. Skátaheimilið í Heiðmörk. Hæsti punktur í hlíðinni með útsýni yfir svæðið.

Nánari upplýsingar um þjónustu

Salerni og bílastæði við íþróttahúsið Miðgarð við upphaf leiðar.

Upplýsingar um hindranir

Compacted soil paths and a horse path in part; take care around horses. Busy paths in summer; mutual care between runners and cyclists.

Mynd
Loka
stjörnuhlaupshringurinn_frá_miðgarði.gpx

Bílastæði við Miðgarð (íþróttahús)