Mynd
Engin atkvæði ennþá
Sveitarfélag

Úlfarsfell frá skógræktinni

Úlfarsfell er eitt vinsælasta útivistarsvæði höfuðborgarsvæðisins og um fjallið liggur fjöldi merktra göngustíga. Þessi hringleið hefst við skógræktarsvæðið í Hamrahlíð, í vesturhlíðum Úlfarsfells, þar sem góð bílastæði eru. Gengið er fyrst um skóginn í Hamrahlíð, sem Skógræktarfélag Mosfellsbæjar hefur umsjón með. Skógrækt hófst á svæðinu á fyrri hluta 20. aldar og þar má meðal annars finna birki, sitkagreni og rauðgreni. Frá skóginum er fylgt merktum stígum upp hlíðar Úlfarsfells og áfram á hæsta tind fjallsins, sem auðvelt er að þekkja á fjarskiptamöstrunum. Af toppnum er víðáttumikið útsýni yfir höfuðborgarsvæðið og nágrenni. Á leiðinni niður er fylgt vönduðum stígum og tröppum sem auðvelda för um bröttustu kaflana. Að lokum liggur leiðin undir hlíðum Úlfarsfells, meðfram hitaveitustokki og aftur að skógræktarsvæðinu í Hamrahlíð. 
 

Opna kort
Upphafsstaður leiðar

Skógræktin í Hamrahlíð, vesturhlíð Úlfarsfells

Nánari upplýsingar

Tímalengd

Vegalengd

5.70km

Erfiðleiki

Samanlögð hæðarhækkun

275,0m

Mesta hæð

357,3m

Tímabil

MEIRAMINNA

Sýnileiki leiðar

Lýsing

Breidd á stíg

Hættur

Hindranir

Þjónusta á leiðinni

Upphafspunktur (lengd/breidd)

64 .15,
-21. 73

Hæð upphafspunkts

121,1m

Samanlögð hæðarlækkun

275,3m

Hnit hæsta punkts

64 .14,
-21. 71

Lægsta hæð

115,3m

Hnit lægstu hæðar

64 .15,
-21. 72

Vegalengd

5.697,7m

Nánari upplýsingar um þjónustu

Bílastæði við upphaf. Gestabók á toppi.

Upplýsingar um hindranir

Steps on the steepest sections. The summit can be windy and slippery.

Mynd
Loka
Úlfarsfell_frá_skógræktinni.gpx

Skógræktin í Hamrahlíð, vesturhlíð Úlfarsfells