Mynd
Hlaupaleið
Engin atkvæði ennþá
Sveitarfélag

Valahnúkar og Búrfellsgjá

Þessi leið er fjölbreytt utanvegahlaupaleið um sögulegt hraunlandslag ofan Hafnarfjarðar og Garðabæjar, sem tengir saman nokkur af merkustu náttúrufyrirbærum svæðisins. Leiðin hefst á bílastæðinu við Búrfellsgjá. Þaðan er hlaupið eftir stígum og reiðleið að bílastæðinu við Kaldársel, skammt frá vatnsbóli Hafnfirðinga í Kaldárbotnum. Hlaupið er framhjá vatnsbólinu eftir gönguleiðinni upp að Helgafelli, en í stað þess að ganga á fjallið er haldið áfram milli Helgafells og Valahnúka. Valahnúkar eru móbergshryggur norðan Helgafells, og er hlaupið umhverfis þá. Því næst er tekin hægri beygja og hlaupið yfir hraunbreiður þar til komið er aftan að Búrfelli og Búrfellsgjá. Búrfell er stakur gjall- og klepragígur sem gaus fyrir um 8000 árum, og úr honum rann Búrfellshraun sem myndar undirlag margra hverfa í Hafnarfirði og Garðabæ. Farið er upp á Búrfellsgjá til að njóta útsýnisins, en hún er rúmlega 3,5 km löng hrauntröð frá gígnum. Búrfell, Búrfellsgjá og Selgjá voru friðlýst sem náttúruvætti árið 2020. Síðan er hlaupið niður Búrfellsgjá og góðri gönguleið fylgt aftur á bílastæðið þar sem leiðin hófst. Í Búrfellsgjá eru einnig merkilegar menningarminjar; Gjáarétt, hlaðin rétt frá 1839 sem var friðlýst sem fornleifar 1964, og Vatnsgjá. Undirlagið er blandað hraun, melar, reiðleiðir og malarstígar, grýtt á köflum. Leiðin er um 12 km með um 150 metra hækkun. Rétt er að hafa varann á vegna sprungna, einkum þegar snjór hylur þær. 

Opna kort
Upphafsstaður leiðar

Bílastæði við Búrfellsgjá

Nánari upplýsingar

Tímalengd

Vegalengd

12.36km

Erfiðleiki

Samanlögð hæðarhækkun

171,4m

Mesta hæð

220,8m

Tímabil

MEIRAMINNA

Aðgengi að leið

Sýnileiki leiðar

Lýsing

Breidd á stíg

Hindranir

Þjónusta á leiðinni

Upphafspunktur (lengd/breidd)

64 .04,
-21. 85

Hæð upphafspunkts

169,4m

Samanlögð hæðarlækkun

171,4m

Hnit hæsta punkts

64 .03,
-21. 83

Lægsta hæð

142,6m

Hnit lægstu hæðar

64 .02,
-21. 87

Vegalengd

12.360,0m

Nánari upplýsingar um þjónustu

Bílastæði og fræðsluskilti við Búrfellsgjá.

Upplýsingar um hindranir

Part of the route is a bridleway; take care around horses. Loose scree and rocky lava in places. Popular with mountain bikers.

Mynd
Loka
valahnúkar_og_búrfellsgjá.gpx

Bílastæði við Búrfellsgjá