Mynd
Hlaupaleið
Engin atkvæði ennþá
Sveitarfélag

Vesturbæjarhringur frá Neslaug

Þessi vinsæla hlaupaleið hefst við Sundlaug Seltjarnarness (Neslaug) og liggur um vestasta hluta höfuðborgarsvæðisins. Leiðin fylgir samfelldu kerfi malbikaðra göngu- og hjólastíga, að stórum hluta meðfram sjónum, með útsýni yfir Faxaflóa, Snæfellsjökul í góðu skyggni og út á Gróttu. Hlaupið er inn í Vesturbæ Reykjavíkur og út á Granda og Örfirisey, eitt af athafnasvæðum gömlu hafnarinnar sem á síðari árum hefur breyst í líflegt svæði með veitingastöðum og útivistastígum. Leiðin er um 11 km með óverulegri hækkun, alls um 55 metrum, og hentar því vel í æfingahlaup á jöfnum hraða. Á leiðinni, á Grandagarði, er listaverkið Þúfa eftir Ólöfu Nordal, manngerður grasivaxinn hóll sem gaman er að klífa og fá gott útsýni yfir borgina og höfnina. Stígarnir eru sameiginlegir göngu- og hjólafólki að hluta og því er rétt að sýna aðgát og víkja fyrir hjólandi umferð. Þar sem leiðin er opin og liggur meðfram sjó getur verið vindasamt, en að sama skapi er útsýnið eftir því. Gnægð bílastæða er við Neslaug og góð sundaðstaða við upphafsstað.

Opna kort
Upphafsstaður leiðar

Neslaug (Sundlaug Seltjarnarness)

Nánari upplýsingar

Tímalengd

Vegalengd

11.12km

Erfiðleiki

Samanlögð hæðarhækkun

73,2m

Mesta hæð

87,3m

Tímabil

MEIRAMINNA

Sýnileiki leiðar

Lýsing

Yfirborð

Breidd á stíg

Þjónusta á leiðinni

Upphafspunktur (lengd/breidd)

64 .15,
-21. 99

Hæð upphafspunkts

77,5m

Samanlögð hæðarlækkun

73,3m

Hnit hæsta punkts

64 .14,
-21. 94

Lægsta hæð

59,6m

Hnit lægstu hæðar

64 .15,
-21. 93

Vegalengd

11.124,2m

Áhugaverðir áningarstaðir

Þúfa eftir Ólöfu Nordal (2013) á Grandagarði: manngerður 8 m grasivaxinn hóll með fiskihjalli á toppi. Hægt að ganga upp eftir stígum og njóta víðs útsýnis yfir borgina og höfnina. Verkið var reist að frumkvæði HB Granda og er orðið eitt af kennileitum Granda.

Nánari upplýsingar um þjónustu

Sundlaug, salerni og bílastæði við Neslaug við upphaf leiðar. Veitingastaðir á Grandagarði.

Upplýsingar um hindranir

Shared walking and cycling paths; yield to cyclists. Windy along the sea and icy patches possible in winter.

Mynd
Loka
vesturbæjarhringur_frá_neslaug.gpx

Neslaug (Sundlaug Seltjarnarness)