Image
Sveitarfélag
Sundhöll Hafnarfjarðar
Sundhöllin er þekkt fyrir sitt rólega andrúmsloft. Laugin er mikið notuð af eldri borgurum og íbúum í nágrenni laugarinnar, jafnframt sem Sundfélag Hafnarfjarðar er með hluta af æfingatímum sínum í lauginni. Nemendur í Víðistaðaskóla, Engidalsskóla og Hjalla sækja einnig þangað í skólasund. Sundhöllin státar af innilaug sem er 25 metrar að lengd og 8,7 metrar í breidd. Hún er 3,2m djúp í dýpri enda laugarinnar. Tveir rúmgóðir heitir pottar eru í afgirtum garði við bygginguna. Annar þeirra er með öflugu nuddtæki. Í garðinum er einnig kaldur pottur. Sérstakir saunaklefar fyrir bæði karla og konur eru í sundlauginni.
Detailed Information
25 metra laug
Aðgengi í laug fyrir fatlaða
Frítt netsamband
Heitir pottar
Innilaug
Kaldur pottur
Nuddpottur
Sána
Sérklefi
Stökkbretti