Suðurbæjarlaug
Suðurbæjarlaug er einstök perla í Hafnarfirði. Þar er 25 metra útisundlaug sem er 12,5 metra breið. Úti eru einnig þrír heitir pottar, vatnsgufa, bunusveppur, vaðlaug, tvær vatnsrennibrautir og tveir kaldir pottar með mismunandi hitastigi. Vinsælt er að ganga göngustíginn sem liggur um sundlaugargarðinn. Innandyra er sérhönnuð kennslulaug sem einnig er góð barnalaug. Sérstakir búningsklefar með sauna og infrarauðum klefum eru til staðar fyrir bæði kynin við hlið hefðbundinna búningsklefa. Á útisvæði eru einnig búningsklefar undir berum himni.
Í kjallara Suðurbæjarlaugar er Gym Heilsa heilsuræktarstöð með aðstöðu. Í sundlauginni er hefðbundið skólasund, sundæfingar SH, ungbarnasundstímar, vatnsleikfimi og tímar í jóga. Í húsnæði laugarinnar er Nuddhofið með aðstöðu fyrir nuddara.
Detailed Information