Image
Sveitarfélag
Ásgarðslaug
Ásgarðslaug er staðsett í Íþróttamiðstöðinni Ásgarði miðsvæðis í Garðabæ. Laugin býður upp á rólegt og notalegt umhverfi með góðri aðstöðu fyrir gesti á öllum aldri. Á svæðinu er 25 metra útilaug, barnalaug með lítilli rennibraut og tveimur nuddbunum, auk heitra potta með mismunandi hitastigi. Einnig er þar kaldur pottur og gufubað sem hentar vel til slökunar eftir sund eða hreyfingu. Fyrsta flokks aðstaða er fyrir fatlað fólk í búningsklefum. Einnig er hjólastólalyfta sem flytur fólk ofan í laugina.
Detailed Information
25 metra laug
Aðgengi í laug fyrir fatlaða
Aðgengi í sánur fyrir fatlaða
Barnalaug
Barnarennibraut
Eimbað
Frítt netsamband
Heitir pottar
Innrauð sána
Kaldur pottur
Leiktæki
Nuddpottur
Sána
Sérklefi
Strandblak
Ungbarnaaðstaða
Útiklefar
Vaðlaug
Veitingasala
Image