Image
Álftaneslaug
No votes yet
Sveitarfélag

Álftaneslaug

Álftaneslaug býður upp á bjarta, hlýlega og fjölskylduvæna aðstöðu þar sem bæði er hægt að slaka á og njóta fjölbreyttrar afþreyingar. Laugin er staðsett við Breiðumýri á Álftanesi. Á svæðinu er 25 metra útilaug og 12 metra innilaug. Einnig eru þar tveir heitir pottar, barnalaug, gufubað og góð aðstaða til afslöppunar. Það sem gerir Álftaneslaug einstaka er eina öldulaug landsins, þar sem sundgestir geta notið skemmtilegs öldugangs. Þá er einnig stór vatnsrennibraut, sem nýtur mikilla vinsælda hjá bæði börnum og fullorðnum. Í byggingu sundlaugarinnar er jafnframt vel búin heilsuræktarstöð og því er auðvelt að sameina sund, hreyfingu og afslöppun á einum stað.

Detailed Information

25 metra laug
Aðgengi í laug fyrir fatlaða
Aðgengi í sánur fyrir fatlaða
Barnalaug
Barnarennibraut
Eimbað
Frítt netsamband
Heitir pottar
Innilaug
Kaldur pottur
Leiktæki
Öldulaug
Rennibraut
Sána
Sérklefi
Ungbarnaaðstaða
Útiklefar
Vaðlaug
Veitingasala
Image
Álftaneslaug