Image
Sveitarfélag
Kópavogslaug
Kópavogslaug hefur um árabil verið einn vinsælasti sundstaður landsins og er jafnframt einn sá stærsti. Þar er fjölbreytt aðstaða sem hentar jafnt til sundiðkunar, hreyfingar og afslöppunar fyrir alla fjölskylduna. Á svæðinu eru þrjár sundlaugar auk sérstakrar rennibrautalaugar: 50 metra útilaug, 25 metra innilaug og 10 metra kennslulaug. Gestir geta notið sjö heitra potta með mismunandi hitastigi, kalds potts og eimbaðs. Á útisvæðinu eru þrjár vinsælar rennibrautir fyrir börn og unglinga, auk lítillar rennibrautar sem er sérstaklega ætluð yngstu gestunum. Í byggingu sundlaugarinnar er einnig vel búin heilsuræktarstöð.
Detailed Information
25 metra laug
50 metra laug
Aðgengi í laug fyrir fatlaða
Aðgengi í sánur fyrir fatlaða
Barnalaug
Barnarennibraut
Eimbað
Frítt netsamband
Heitir pottar
Innilaug
Kaldur pottur
Leiktæki
Nuddpottur
Rennibraut
Sérklefi
Ungbarnaaðstaða
Útiklefar
Vaðlaug
Veitingasala
Image