Salalaug
Salalaug er staðsett í efri byggðum Kópavogs, í Íþróttamiðstöðinni að Versölum 3. Í húsinu er einnig að finna líkamsrækt, Lemon veitingastað og stærsta fimleikahús landsins. Í lauginni eru fjórir almennir búningsklefar auk sérklefa fyrir þau sem þurfa á auknu næði að halda. Útilaugin er 25 metra löng og innilaugin 16,7 metrar. Gestir geta notið tveggja heitra potta (38°C og 40°C) sem og iðulaugar, sem er stór nuddpottur með öflugu vatnsnuddi. Fyrir börnin er glæsilegt leiksvæði með litlum og stórum rennibrautum ásamt fjölbreyttum vatnsleiktækjum. Salalaug býður einnig upp á notalega vellíðunaraðstöðu þar sem finna má gufubað, innrauða sánu, hefðbundna sánu og kaldan pott – fullkomið til að slaka á eftir sund eða æfingar. Öll eru hjartanlega velkomin í Salalaug.
Detailed Information