Mynd
Engin atkvæði ennþá
Sveitarfélag

Esjuhlíðar

Útivistarsvæðin við Esjuna eru með þeim vinsælustu á höfuðborgarsvæðinu og þangað leggur fjöldi fólks leið sína allt árið, hvort sem er til að ganga bratt upp á fjallið eða fara um Esjuhlíðarnar í fjölbreyttu og fallegu umhverfi. Milli Esjustofu og Kollafjarðará liggur nýleg tengileið, um 1.850 metra löng aðra leiðina, eða tæplega fjórir kílómetrar fram og til baka. Leiðin liggur um gamlan skóg í hlíðum Esjunnar og tengist stígakerfi um trjásafnið að Mógilsá, þar sem áður var rannsóknarstöð Skógræktar ríkisins. Undirlagið er blandað: mold, melur, grjót og skógarbotn og farið er yfir nokkrar sprænur á brúm. Leiðin er fremur brött á köflum en annars þægileg yfirferðar og hentar vel bæði til göngu og hlaupa. Á leiðinni er víða gott útsýni yfir Kollafjörð og út á sundin, og skógurinn veitir skjól í misjöfnum veðrum. Hægt er að leggja af stað frá Esjustofu eða frá bílastæðinu við Kollafjarðará, og þaðan tengist leiðin öðrum stígum í Esjuhlíðum. Bílastæði eru bæði neðan Þverfellshorns og við Kollafjarðará, og salerni er við Esjustofu. Útivistarsvæðin í Esjuhlíðum eru í umsjón Skógræktarfélags Reykjavíkur, sem eru frjáls félagasamtök. Nánari upplýsingar má finna á heidmork.is.

Opna kort
Upphafsstaður leiðar

Esjustofa eða bílastæði við Kollafjarðará

Nánari upplýsingar

Tímalengd

Vegalengd

1.86km

Erfiðleiki

Samanlögð hæðarhækkun

108,8m

Mesta hæð

82,0m

Tímabil

MEIRAMINNA

Sýnileiki leiðar

Lýsing

Breidd á stíg

Þjónusta á leiðinni

Upphafspunktur (lengd/breidd)

64 .20,
-21. 71

Hæð upphafspunkts

18,4m

Samanlögð hæðarlækkun

65,6m

Hnit hæsta punkts

64 .20,
-21. 69

Lægsta hæð

18,4m

Hnit lægstu hæðar

64 .20,
-21. 71

Vegalengd

1.859,4m
Mynd
Loka
esjuhlíðar.gpx

Esjustofa eða bílastæði við Kollafjarðará