Mynd
Engin atkvæði ennþá
Sveitarfélag

Frá Laugardal um Skarfaklett og Voga

Þessi fjölbreytta og fallega 12 km hjólaleið hefst í hjarta Laugardalsins. Frá upphafsstað er hjólað fram hjá Ásmundarsafni, þar sem verk hins þekkta myndhöggvara Ásmundar Sveinssonar prýða garðinn. Síðan er beygt til hægri niður að Sæbraut og farið yfir götuna í átt að Laugarnestanga. Þar er stígur meðfram ströndinni með fallegu útsýni yfir sundin og Viðey. Hér má einnig finna safn Sigurjóns Ólafssonar sem gaman er að heimsækja. Áfram liggur leiðin að Skarfakletti, vinsælum viðkomustað fyrir sjósund og ferjuna sem siglir yfir til Viðeyjar. Hér er tilvalið að staldra við og njóta útsýnisins. Haldið er áfram eftir Vatnagörðum og í gegnum Skútuvog. Farið er eftir stíg sem liggur frá Bátavog og þaðan aftur yfir Sæbrautina að hjólastígnum til vinstri þangað til komið er aftur að Laugardalnum. Lokaspretturinn liggur í gegnum stíga Laugardalsins þar sem tré, blóm og græn svæði bjóða hjólafólki góðan endi á skemmtilegum hring. 
 

Opna kort
Upphafsstaður leiðar

Laugardalur

Nánari upplýsingar

Tímalengd

Vegalengd

11.41km

Erfiðleiki

Samanlögð hæðarhækkun

70,0m

Mesta hæð

94,1m

Tímabil

MEIRAMINNA

Sýnileiki leiðar

Lýsing

Yfirborð

Breidd á stíg

Hindranir

Þjónusta á leiðinni

Upphafspunktur (lengd/breidd)

64 .14,
-21. 88

Hæð upphafspunkts

78,1m

Samanlögð hæðarlækkun

69,9m

Hnit hæsta punkts

64 .13,
-21. 86

Lægsta hæð

69,5m

Hnit lægstu hæðar

64 .15,
-21. 86

Vegalengd

11.409,6m
Mynd
Mynd
Mynd