Mynd
Meðaltal: 5 (3 atkvæði)
Sveitarfélag

Guðmundarlundur og Elliðavatn

Genginn er hringur meðfram Elliðavatni og um Vatnsendahlíð. Gangan hefst við Guðmundarlund sunnan megin í Vatnsendahlíð og er sama í hvora áttina er farið. Á sumrin er fólk sérstaklega hvatt til þess að veita fuglunum athygli enda liggur leiðin um nokkur vistkerfi. Ýmist er gengið í félagi við spörfugla í skógi vöxnum Guðmundarlundi og í kjarrlendinu í kring eða að leiðin liggur um ríki mófugla í Vatnsendahlíð. Að auki má sjá til sundfugla á Elliðavatni. Fjallasýn er til allra átta í góðu skyggni og forvitnilegt er að virða fyrir sér misgengisdalina og ímynda sér Elliðavatn eins og það var áður en það varð að miðlunarlóni fyrir um einni öld og stækkaði þá umtalsvert. Leiðin er fær allt árið en það getur verið að skynsamlegt að leggja bílum við íþróttahúsið Kórinn þegar snjóþungt er á veturna. Farið er um fjölbreytta slóða og geta sumir þeirra orðið blautir í vætutíð en einnig eru gengnir malarvegir og nýlega malbikaðir stígar. Þarna eru göngustígar og reiðstígar þvers og kruss. Göngu- og hjólafólk ætti að hafa í huga að hross geta verið hvumpin og geta hræðst ýmislegt, hvell hljóð eða snöggar hreyfingar. Það er því góð regla að þegar þið mætið hestafólki að stíga til hliðar af stígnum og hinkra róleg á meðan riðið er fram hjá.

Opna kort
Upphafsstaður leiðar

Guðmundarlundur

Nánari upplýsingar

Tímalengd

Vegalengd

5.01km

Erfiðleiki

Samanlögð hæðarhækkun

197,9m

Mesta hæð

156,4m

Tímabil

MEIRAMINNA

Sýnileiki leiðar

Lýsing

Breidd á stíg

Hindranir

Þjónusta á leiðinni

Upphafspunktur (lengd/breidd)

64 .07,
-21. 82

Hæð upphafspunkts

98,3m

Samanlögð hæðarlækkun

195,7m

Hnit hæsta punkts

64 .07,
-21. 81

Lægsta hæð

66,9m

Hnit lægstu hæðar

64 .08,
-21. 80

Nánari upplýsingar um þjónustu

Á sumrin eru salerni opin í Guðmundarlundi

Vegalengd

5.011,7m
Loka