Mynd
Meðaltal: 4 (3 atkvæði)
Sveitarfélag

Himnastiginn, Víghóll og Heljarslóð

Frá Digraneskirkju er gengið að Himnastiganum sem er tröppustígur sem liggur upp úr Kópavogsdal og upp á Digranesheiði. Tröppurnar eru 207 talsins, hæðarmismunur tæpir 52 metrar og lengdin á tröppunum um 360 metrar. Himnastiginn er sérstaklega vinsæll meðal göngu- og hlaupafólks þar sem hann hentar vel til þolæfinga. Þegar komið er upp tröppurnar liggur leiðin enn hærra og upp að Víghól. Mjög víðsýnt er frá Víghóli en svæðið var friðlýst sem náttúruvætti árið 1983. Þar er að finna jökulsorfnar grágrýtisklappir, svokölluð hvalbök. Jökulrákirnar segja til um skriðstefnu jökulíssins sem lá yfir Kópavogi í lok ísaldar. Þarna er útsýnisskífa ásamt skilti sem segir frá jarðsögu svæðisins. Að því búnu er gengið yfir að íþróttahúsinu Digranesi og niður kræklóttan göngustíg sem margir kalla Heljarslóð. Á veturna getur verið snjór og hálka á þessum stígum og því er skynsamlegt að nota göngubrodda.  

Opna kort
Upphafsstaður leiðar

Digraneskirkja

Nánari upplýsingar

Tímalengd

Vegalengd

3.46km

Erfiðleiki

Samanlögð hæðarhækkun

390,7m

Mesta hæð

155,2m

Tímabil

MEIRAMINNA

Sýnileiki leiðar

Lýsing

Yfirborð

Breidd á stíg

Hindranir

Þjónusta á leiðinni

Upphafspunktur (lengd/breidd)

64 .10,
-21. 88

Hæð upphafspunkts

79,8m

Samanlögð hæðarlækkun

362,4m

Hnit hæsta punkts

64 .11,
-21. 87

Lægsta hæð

77,7m

Hnit lægstu hæðar

64 .10,
-21. 87

Áhugaverðir áningarstaðir

https://ferlir.is/vigholl-skilti/

Nánari upplýsingar um þjónustu

Salerni í íþróttahúsi Digranes og Digraneskirkju

Vegalengd

3.461,0m