Mynd
Engin atkvæði ennþá
Sveitarfélag

Hobbitastígur og Vífilsstaðahlíð

Þessi vinsæla utanvegahlaupaleið liggur um Vífilsstaðahlíð í Garðabæ, eitt fjölbreyttasta útivistarsvæði bæjarins. Leiðin hefst við enda Vífilsstaðahlíðar. Þaðan er hlaupið framhjá Maríuhellum, um svokallaðan Hobbitastíg, sem hlauparar á svæðinu þekkja vel og inn á skógi vaxna hlíðina á móts við háspennulínuna. Undirlagið er að mestu þjappaðir moldarstígar og góðir malarstígar, líkt og víðast hvar á þessum slóðum, og hentar vel til hlaupa. Leiðin er um 8 km hringur með hóflegri hækkun, alls um 95 metrum. Vífilsstaðahlíð er skjólsæl og gróin og því kjörin í hvassviðri. Hægt er að tengja leiðina við lengri hringi, til dæmis um Urriðakotshraun og áfram að Búrfellsgjá. Garðabær og Skógræktarfélag Reykjavíkur hafa byggt upp góða aðstöðu á svæðinu með bílastæðum, bekkjum, fræðsluskiltum og kortum við aðkomu. Á sumardögum er nokkur umferð á stígunum, bæði gangandi og hjólandi, og rétt að sýna aðgát. Þar sem svæðið er að hluta friðland ber að ganga vel um náttúruna; hundar eru bannaðir í friðlandinu um varptímann.

Opna kort
Upphafsstaður leiðar

Bílastæði við hringhlið við enda Vífilsstaðahlíðar

Nánari upplýsingar

Vegalengd

8.15km

Erfiðleiki

Samanlögð hæðarhækkun

113,7m

Mesta hæð

179,0m

Tímabil

MEIRAMINNA

Aðgengi að leið

Sýnileiki leiðar

Lýsing

Breidd á stíg

Þjónusta á leiðinni

Upphafspunktur (lengd/breidd)

64 .07,
-21. 88

Hæð upphafspunkts

116,5m

Samanlögð hæðarlækkun

113,4m

Hnit hæsta punkts

64 .05,
-21. 87

Lægsta hæð

115,9m

Hnit lægstu hæðar

64 .07,
-21. 89

Vegalengd

8.153,7m

Tímabundnar upplýsingar

Hundar bannaðir í friðlandinu við Vífilsstaðavatn um varptímann.

Upplýsingar um hindranir

Busy paths in summer; mutual care between runners and cyclists.

Mynd
Mynd
Loka
hobbitastígur_og_vífilsstaðahlíð.gpx

Bílastæði við hringhlið við enda Vífilsstaðahlíðar