Lali og Reykjaborg
Þessi leið er stutt en skemmtileg fjallahlaupaleið á tvo af merktum tindum Mosfellsbæjar, Reykjaborg (286 m) og Lala (242 m), sem gnæfa yfir Hafravatni. Fellin eru hvorki há né sérlega brött og henta vel til þolþjálfunar eða sem tilbreyting frá Úlfarsfelli. Leiðin hefst við malarstæði undir Hafrahlíð. Gengið er eftir reiðstíg að skógræktinni að stikuðum stíg gegnum skógrækt sem liggur upp grónar hlíðar að Reykjaborg. Haldið er upp á Reykjaborg, en af toppnum er víðsýnt yfir Mosfellsbæ, Esjuna og í góðu skyggni allt til Snæfellsjökuls. Leiðin liggur svo yfir á Lala, þar sem varða er á toppi og útsýni opnast yfir Úlfarsfell, Reykjavík, Reykjanes og Bláfjöll. Mosfellsbær hefur merkt tinda bæjarins með stöplum þar sem nafn og hæð koma fram, og lagt stikaðar gönguleiðir sem margar eru til fyrirmyndar. Rétt er að hafa í huga að stikur ná að Lala en leiðin milli tindanna getur verið ógreinileg á köflum, og milli fellanna er bratti í grófri möl sem þarf að fara varlega yfir. Leiðin er um 4,5 km með um 275 metra hækkun og því góð styrktar- og þolæfing þrátt fyrir stutta vegalengd. Auðvelt er að snúa henni við og fara á Lala fyrst til að fá hraðari hækkun og lengra niðurhlaup.
Malarstæði við Dísarhól
Nánari upplýsingar
Tímalengd
Vegalengd
Erfiðleiki
Samanlögð hæðarhækkun
Mesta hæð
Tímabil
Sýnileiki leiðar
Lýsing
Yfirborð
Breidd á stíg
Hættur
Hindranir
Þjónusta á leiðinni
Upphafspunktur (lengd/breidd)
Hæð upphafspunkts
Samanlögð hæðarlækkun
Hnit hæsta punkts
Lægsta hæð
Hnit lægstu hæðar
Vegalengd
Áhugaverðir áningarstaðir
Merktir tindar Mosfellsbæjar: Reykjaborg (286 m) og Lali (242 m), báðir merktir stöpli með nafni og hæð. Víðsýnt yfir Mosfellsbæ, Esju, Úlfarsfell og nágrenni.
Upplýsingar um hindranir
The route between summits is indistinct in places; a map is advisable. Summits can be windy.