![](/sites/default/files/styles/hero_768/public/route-images/grotta-7648.jpg?itok=g0phEOfv)
Neshringurinn
Fólk á öllum aldri gengur sér til heilsubótar um Nesið og nýtur óviðjafnanlegs útsýnis og náttúrunnar. Þessi 5 km hringur liggur meðfram Seltjarnarnesinu og hefst við bílastæðið hjá Gróttu. Gengið er í suðurátt meðfram sjónum og áfram fram með Bakkatjörn. Rétt við golfvöllinn er sveigt til vinstri og inn á malbikaðan göngu- og hjólastíginn sem liggur með suðurströnd Nessins. Stígurinn er genginn austur og yfir Nesið, fram hjá sundlauginni og Eiðistorgi allt þar til komið er að norðurströndinni. Þar er sveigt til vinstri og gengið vestur á bóginn að bílastæðinu við Gróttu. Tilvalið er að koma við hjá listaverkinu Kviku eftir listakonuna Ólöfu Nordal sem stendur á Kisuklöppum við fjöruna rétt áður en komið er að Gróttu og dýfa tánum ofan í. Í laugina rennur forkælt jarðhitavatn úr borholum Seltjarnarness, en vatnið hefur einstaka efnasamsetningu og þykir hafa heilnæma eiginleika.
Bílastæði við Gróttu
Nánari upplýsingar
Tímalengd
Vegalengd
Erfiðleiki
Samanlögð hæðarhækkun
Mesta hæð
Tímabil
Aðgengi að leið
Sýnileiki leiðar
Lýsing
Yfirborð
Breidd á stíg
Hættur
Hindranir
Upphafspunktur (lengd/breidd)
Hæð upphafspunkts
Samanlögð hæðarlækkun
Hnit hæsta punkts
Lægsta hæð
Hnit lægstu hæðar
Vegalengd
![](/sites/default/files/route-images/grotta-7648.jpg)
Bílastæði við Gróttu