Mynd
Engin atkvæði ennþá
Sveitarfélag

Reykjaborg og Lali

Fellin Reykjaborg og Lali eru hvorki há né brött og henta því vel fyrir þægilega og fjölbreytta göngu með fallegu útsýni. Gangan hefst við bílastæðið við Hafrafellsrétt, þaðan sem slóðanum er fylgt í gegnum skógræktarsvæðið og eru stikur sem vísa leiðina áfram. Þegar komið er upp að vegi er gengið yfir hann og áfram eftir stikunum í átt að Borgarvatni. Við norðurenda vatnsins er haldið til vinstri og áfram upp á Reykjaborg. Af toppnum blasir við fallegt útsýni yfir Mosfellsbæ, Esjuna og víðar ef veður leyfir. Frá Reykjaborg liggur leiðin áfram yfir að Hafrahlíð og topp fellsins sem kallast Lali. Hér hverfa stikunarnar, en hægt er að fylgja greinilegum slóða áfram í átt að vörðunni á toppnum. Slóðinn verður óljós í einni brekku, en haldið er beint áfram í átt að Reykjavík. Af toppi Lala er stórbrotið útsýni yfir Úlfarsfell, Reykjavík, Reykjanesið, Vífilsfell og Bláfjöll. Síðan er hlíðinni fylgt niður, farið er yfir á veginn og beygt til hægri að skógræktinni og bílastæðinu. 

Opna kort
Upphafsstaður leiðar

Bílastæði við Hafravatnsrétt

Nánari upplýsingar

Tímalengd

Vegalengd

6.86km

Erfiðleiki

Samanlögð hæðarhækkun

302,7m

Mesta hæð

337,2m

Tímabil

MEIRAMINNA

Aðgengi að leið

Sýnileiki leiðar

Lýsing

Breidd á stíg

Hindranir

Þjónusta á leiðinni

Upphafspunktur (lengd/breidd)

64 .12,
-21. 64

Hæð upphafspunkts

141,5m

Samanlögð hæðarlækkun

302,7m

Hnit hæsta punkts

64 .14,
-21. 63

Lægsta hæð

141,5m

Hnit lægstu hæðar

64 .12,
-21. 64

Vegalengd

6.859,5m
Loka
reykjaborg_og_lali.gpx

Bílastæði við Hafravatnsrétt