Mynd
Engin atkvæði ennþá
Sveitarfélag

Seltjarnarnes og golfvöllur

Á Seltjarnarnesi má finna góða hjóla- og göngustíga sem liggja um falleg náttúrusvæði svo sem Gróttu og umhverfið við Bakkatjörn. Þessi 7,5 km hringur liggur meðfram Seltjarnarnesinu og golfvellinum og hefst við bílastæðið hjá Gróttu. Þaðan er stígurinn meðfram sjónum genginn til suðurs, fram hjá Bakkatjörn í átt að svæði golfklúbbsins. Þegar malbikaða stígnum sleppir er gengið inn á malarstíg sem liggur meðfram golfvellinum og farið meðfram sjónum umhverfis golfvöllinn. Síðan er ferðinni haldið áfram eftir malbikuðum stíg við suðurströnd Seltjarnarness, áfram austur og fram hjá sundlauginni og yfir Nesið og aftur að norðurströndinni hjá Eiðistorgi. Síðan er stígurinn norðan megin genginn uns komið er aftur að bílastæðinu við Gróttu. Stórkostlegt útsýni er frá nesinu út yfir Faxaflóa og sérstaklega er sólarlagið undurfagurt. Á sumrin er ysti hluti Seltjarnarness sannkölluð fuglaparadís því ótal tegundir verpa í kringum Bakkatjörn og á gömlu túnunum hjá Gróttu. Þar er krían atkvæðamest.

Opna kort
Upphafsstaður leiðar

Bílastæði við Gróttu

Nánari upplýsingar

Tímalengd

Vegalengd

7.57km

Erfiðleiki

Samanlögð hæðarhækkun

13,8m

Mesta hæð

72,9m

Tímabil

MEIRAMINNA

Sýnileiki leiðar

Lýsing

Yfirborð

Breidd á stíg

Hindranir

Þjónusta á leiðinni

Upphafspunktur (lengd/breidd)

64 .16,
-22. 01

Hæð upphafspunkts

65,1m

Samanlögð hæðarlækkun

8,1m

Hnit hæsta punkts

64 .16,
-22. 01

Lægsta hæð

65,1m

Hnit lægstu hæðar

64 .16,
-22. 01

Nánari upplýsingar um þjónustu

Salerni í Sundlaug Seltjarnarness

Vegalengd

7.570,0m
Loka
seltjarnarnes_og_golfvöllur.gpx

Bílastæði við Gróttu