Úlfarsfell frá skógræktinni
Úlfarsfell er meðal vinsælustu útivistarsvæða á höfuðborgarsvæðinu og fjöldi merktra stíga liggur um fjallið. Þessi hringleið hefst við skógræktarsvæðið í Hamrahlíð í vesturhlíðum fellsins þar sem góð bílastæði eru. Skógræktarfélag Mosfellsbæjar sér um svæðið, en skógrækt hófst þar á fyrri hluta 20. aldar. Í skóginum má finna birki, sitkagreni og rauðgreni. Hlaupið er meðfram Úlfarsfelli upp á hæsta tind fjallsins, sem þekkist á fjarskiptamöstrunum, eftir merktum stígum. Af toppnum er víðsýnt yfir höfuðborgarsvæðið. Mosfellsbær hefur lagt vandaða stíga og sett tröppur á bröttustu köflunum á leiðnni niður. Leiðin liggur svo til baka undir hlíðum Úlfarsfells eftir hitaveitustokk og að skógræktinni sem myndar hring, um 5,7 km með um 274 m hækkun. Gott er að huga að veðri, enda getur verið hvasst á toppnum þótt skjólgott sé í skóginum.
Skógræktin í Hamrahlíð, vesturhlíð Úlfarsfells
Nánari upplýsingar
Upphafspunktur (lengd/breidd)
Hæð upphafspunkts
Samanlögð hæðarlækkun
Hnit hæsta punkts
Lægsta hæð
Hnit lægstu hæðar
Vegalengd
Nánari upplýsingar um þjónustu
Bílastæði við upphaf. Gestabók á toppi.
Upplýsingar um hindranir
Steps on the steepest sections. The summit can be windy and slippery.