Mynd
Engin atkvæði ennþá
Sveitarfélag

Seljatjörn

Seljatjörn er útivistarperla í miðju Seljahverfi í Breiðholti og er ákaflega vinsæl meðal íbúa í hverfinu. Tjörnin er fögur manngerð settjörn þar sem vinsælt er að svipast um eftir sílum og stikla á steinum sem liggja í tjörninni að lítilli eyju. Við tjörnina er almenningsgarður með garðhýsi og leiktæki fyrir börn. Það er tilvalið að hlaupa um í leik á grasfletinu og setjast svo niður með nesti og teppi í lautarferð. Á sumrin má svo njóta þess að skoða litrík blóm sem plantað hefur verið í garðinum öllum sem þangað koma til yndisauka. Umhverfið er hannað til að gleðja fólk og njóta samvista við aðra á öllum aldri, en í nágrenninu eru heimili fyrir eldri borgara og skólar. Við Seljatjörn er einnig að finna verkin Móðir mín í kví, kví og Fýk­ur yfir hæðir eft­ir Ásmund Sveins­son.

Opna kort

Nánari upplýsingar

MEIRAMINNA

Sund

Breiðholtslaug

Samgöngur

Strætóleiðir 3 og 4 (Strætóstöð: Hólmasel)

Loka