Mynd
Engin atkvæði ennþá
Sveitarfélag

Hamarinn

Hamarinn nýtur vinsælda sem útivistarsvæði og setur hann mikinn svip á Hafnarfjörð. Hamarinn var friðlýstur sem náttúruvætti árið 1984 en í klöppunum ofan á honum sjást jökulrákir eftir skriðjökla ísaldar. Viðsýnt er af Hamrinum og þar er útsýnisskífa sem aðstoðar við að glöggva sig á því sem fyrir augu ber. Í góðu skyggni má sjá allan fjallahringinn umhverfis Faxaflóa. Margir Hafnfirðingar sem hafa leikið sér í Hamrinum telja sig hafa séð þar hvítklædda veru og sumir hafa talið sig heyra fagran söng án þess að sjá lifandi sálu.

Opna kort

Nánari upplýsingar

MEIRAMINNA

Menning / saga

https://ferlir.is/hamarinn-skilti/

Sund

Suðurbæjarlaug

Samgöngur

Strætóstöð: Flensborg (leið 1)

Loka

Tengdar gönguleiðir