Mynd
Engin atkvæði ennþá
Sveitarfélag

Reynisvatn

Reynisvatn er lítið stöðuvatn austan við Grafarholt í Reykjavík sem er vinsælt svæði til útivistar. Við Reynisvatn er ört vaxandi skógur sem veitir skjól og laðar að ýmsar fuglategundir eins og heiðlóu, spóa, hrossagauk og þúfutittling. Það er tilvalið að setjast á bekki sem staðsettir eru við vatnið og virða fyrir sér líf manna og dýra í fallegri náttúru allan ársins hring. Greiðfær stígur liggur hringinn í kringum vatnið sem er um 1,3 km langur og gaman er að ganga sér til heilsubótar. Frá Reynisvatni er svo tenging á hina fjölmörgu stíga sem liggja allt um Austurheiðar sem tilvalið er að ganga, hjóla eða hlaupa um.

Opna kort

Nánari upplýsingar

MEIRAMINNA

Sund

Dalslaug

Samgöngur

Strætóleið 18 liggur að Reynisvatni (stoppistöð: Reynisvatn)

Loka

Tengdar gönguleiðir