Mynd
Engin atkvæði ennþá
Sveitarfélag

Víðistaðatún

Víðistaðatún er fallegur almenningsgarður við Víðistaðakirkju og skátaheimili Hraunbúa í Hafnarfirði. Á svæðinu ættu allir að geta fundið sér eitthvað að gera við sitt hæfi. Svæðið státar af fjölmörgum útilistaverkum sem tilvalið er að skoða og börn hafa gaman af að leika sér í. Nóg er að gera fyrir börnin. Þau geta leikið sér í aparólu, hoppað ærslabelg og leikið sér í kastala. Einnig er þar skógarlundur sem tilvalinn er til leikja. Þegar allir eru orðnir svangir er hægt að grilla í grillhúsi sem er rétt hjá kastalanum. Í garðinum er eini tennisvöllur Hafnfirðinga og einnig sex holu frisbígolfvöllur. Frítt er á völlinn og ekki nauðsynlegt að bóka fyrirfram. Upplýsingaskilti um leikreglur og skipulag vallarins er á túninu fyrir neðan Víðistaðakirkju. Á Víðistaðatúni er tjaldsvæði sem er opið frá miðjum maí fram í lok ágúst. Á svæðinu er stórt viðburðatún þar sem fjölmargar uppákomur eru haldnar árlega. Þar má nefna sýningar Hundaræktarfélags Íslands og Víkingahátíðina sem félagið Rimmugýgur sér um, auk þess sem Krikketsamband Íslands er með reglubundnar æfingar á svæðinu yfir sumartímann.

Opna kort

Nánari upplýsingar

MEIRAMINNA

Sund

Sundhöll Hafnarfjarðar

Sjósund

Hægt er að stunda sjósund við fjöruna við Sundhöll Hafnarfjarðar.

Samgöngur

Strætóstöð: Sundhöll Hafnarfjarðar (leið 19)

Loka

Tengdar gönguleiðir