Mynd
Engin atkvæði ennþá
Sveitarfélag

Vestursvæðin

Vestursvæðin er hin eiginlega sveit Seltirninga og er einstök náttúruperla. Fjörurnar eru hentugar til útivistar og eru auðugar af lífi sem vert er að skoða. Fuglalífið er sérlega fjölskrúðugt. Við Bakkatjörn er fuglaskoðunarhús og hægt er að ganga hringinn í kringum tjörnina. Svæðið er afar vinsælt af hlaupa- og hjólreiðafólki enda eru þar góðir stígar og þarna eru einnig tæki til að teygja á eftir æfingarnar. Einnig er þar golfvöllur þar sem kylfingar njóta fegurðarinnar allt í kring í sátt og samlyndi við iðandi fuglalíf. Víðsvegar um svæðið eru bekkir til að tylla sér á og njóta umhverfisins. Á þessu svæði er einnig Urtagarðurinn hjá Nesstofu, en þar eru til sýnis lækningajurtir sem notaðar voru á fyrri tíð þegar Nesstofa var aðsetur landlæknis.

Opna kort

Nánari upplýsingar

MEIRAMINNA

Sund

Sundlaug Seltjarnarness

Samgöngur

Leið 11 fer út á Seltjarnarnes. Best er að fara út við Lindarbraut/Hofgarða

Loka

Tengdar gönguleiðir